Framfarafélagið kallar eftir rökum fyrir nýjum takmörkunum á atvinnustarfsemi
Framfarafélag Vestfjarða telur ekki hafa verið sýnt nægilega fram á þörfina fyrir nýjar takmarkanir á landtöku farþega skemmtiferða- og leiðangursskipa á friðlýstum svæðum. Félagið gerir jafnframt athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar á friðun hafsvæða og leggur áherslu á að áhrif slíkra ákvarðana á atvinnulíf og uppbyggingu á Vestfjörðum verði metin áður en nýjar reglur taka gildi.
Þetta kemur fram í umsögn Framfarafélags Vestfjarða um drög að frumvarpi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins til breytinga á náttúruverndarlögum.
Félagið sendi inn umsögn um málið í Samráðsgátt stjórnvalda, en Guðmundur Fertram Sigurjónsson, talsmaður Framfarafélagsins, skrifar undir hana fyrir hönd félagsins.
Frumvarpið felur meðal annars í sér nýja leyfisskyldu vegna landtöku farþega skemmtiferða- og leiðangursskipa á friðlýstum svæðum, breytingar á málsmeðferð við friðlýsingu og friðun í hafi og nýtt fyrirkomulag við uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum.
Framfarafélagið tekur undir markmið um náttúruvernd, öryggi ferðafólks og skýrari stjórnsýslu. Félagið telur hins vegar mikilvægt að nýjar reglur leggi ekki meiri byrðar á atvinnustarfsemi en nauðsynlegt er og að skýrt sé hvaða vanda þeim sé ætlað að leysa.
Telja nýja leyfisskyldu ekki nægilega rökstudda
Ein helsta athugasemd félagsins snýr að fyrirhugaðri leyfisskyldu vegna landtöku farþega skemmtiferða- og leiðangursskipa á friðlýstum svæðum utan skilgreindra hafna.
Framfarafélagið bendir á að skipulagðar heimsóknir ferðamanna á slík svæði geti skapað tekjur og ný verkefni fyrir leiðsögumenn og ferðaþjónustufyrirtæki í nærliggjandi byggðarlögum. Það eigi ekki síst við á Vestfjörðum, þar sem náttúra svæðisins skapar mikil tækifæri í ferðaþjónustu.
Félagið telur hins vegar að í greinargerð frumvarpsins skorti nægilegar upplýsingar um umfang landtöku á þeim svæðum sem ákvæðið tekur til og það náttúrurask sem henni kann að fylgja. Þá sé ekki skýrt hvort gildandi lagaheimildir hafi reynst ófullnægjandi til að bregðast við mögulegum vanda.
„Almenn vísun til fjölgunar skemmtiferðaskipa er ekki ein og sér nægilegur rökstuðningur fyrir nýrri leyfisskyldu sem tekur aðeins til afmarkaðrar starfsemi á þegar friðlýstum svæðum,“ segir í umsögn félagsins, sem Guðmundur Fertram Sigurjónsson undirritar.
Verði leyfisskyldan engu að síður lögfest vill Framfarafélagið að leyfisferlið verði einfalt og fyrirsjáanlegt, með skýrum afgreiðslufrestum og möguleika á að veita leyfi fyrir heila vertíð eða fleiri sambærilegar heimsóknir.
Félagið bendir á að ferðir skemmtiferða- og leiðangursskipa séu gjarnan skipulagðar með löngum fyrirvara. Óvissa um leyfisveitingar geti því haft áhrif á ákvörðun útgerðaraðila um viðkomustaði og þar með þau verkefni sem standi ferðaþjónustufyrirtækjum til boða.
Vilja tryggja aðkomu sjávarútvegsins að friðun hafsvæða
Framfarafélagið gerir jafnframt athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar á málsmeðferð við friðlýsingu og friðun hafsvæða.
Samkvæmt frumvarpsdrögunum er meðal annars lagt til að í stað þess samráðs við ráðherra sjávarútvegsmála sem gildandi lög mæla fyrir um verði framvegis leitað álits hans við undirbúning friðunar í hafi.
Félagið telur að rökstyðja þurfi sérstaklega nauðsyn þessarar breytingar og skýra hvaða áhrif hún kunni að hafa á vægi sjónarmiða sjávarútvegsins við ákvarðanatöku.
Á Vestfjörðum byggist stór hluti atvinnulífsins á nýtingu sjávarauðlinda. Ákvarðanir um friðun hafsvæða geta því haft áhrif á rekstrarskilyrði sjávarútvegs- og fiskeldisfyrirtækja, fjárfestingar og möguleika til framtíðaruppbyggingar.
Framfarafélagið leggur áherslu á að ákvarðanir um slíkar takmarkanir byggist á traustum gögnum um verndarþörf og að efnahagsleg og byggðaleg áhrif verði metin áður en þær eru ákveðnar. Þá verði leitað sjónarmiða sveitarfélaga og þeirra fyrirtækja sem starfsemi stunda á viðkomandi svæðum.
„Fyrirsjáanleiki um nýtingu hafsvæða skiptir verulegu máli fyrir atvinnugreinar þar sem fjárfestingar eru umfangsmiklar og uppbygging byggist á langtímaáætlunum,“ segir í umsögninni.
Félagið leggur einnig áherslu á að kannað verði hvort unnt sé að ná markmiðum náttúruverndar með vægari úrræðum áður en gripið er til takmarkana á atvinnustarfsemi.
Innviðauppbygging taki mið af þörfum landsbyggðarinnar
Þá fjallar umsögnin um fyrirhugaðar breytingar á uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum. Framfarafélagið gerir ekki athugasemd við markmið um einfaldara fyrirkomulag en leggur áherslu á að forgangsröðun framkvæmda taki mið af aðstæðum í dreifðri byggð.
Á Vestfjörðum geti jafnvel tiltölulega litlar framkvæmdir, svo sem göngustígar, merkingar og salernisaðstaða, bætt aðgengi að ferðamannastöðum og skapað ný tækifæri fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Félagið telur mikilvægt að sjónarmið sveitarfélaga komi fram við forgangsröðun verkefna og að tryggð verði fjármögnun viðhalds svo fjárfestingarnar nýtist til lengri tíma.
Í niðurlagi umsagnarinnar ítrekar Framfarafélagið að skýrar leikreglur og ábyrg náttúruvernd eigi að geta farið saman við öflugt atvinnulíf, fjárfestingar og verðmætasköpun.