Kraftur Vestfjarða. Tækifæri til framtíðar

Fréttir og pistlar um atvinnuuppbyggingu, innviði og tækifæri á Vestfjörðum.

Nýjast

„Svona tækifæri hefði verið fágætt hér áður“

Emil Ólafur Ragnarsson og eiginkona hans fluttu nær fyrir tilviljun aftur á Vestfirði. Í dag búa þau með börnum sínum á Flateyri, þar sem þau hafa keypt draumahúsið, fundið sig í samfélaginu og byggt…

Fleiri fréttir

  1. Framfarafélag Vestfjarða styður kröfur um laugardagsflug vestur

  2. Ungar athafnakonur kynntu sér vestfirskt atvinnulíf

  3. Fólksfjölgun á Vestfjörðum kallar á aukna íbúðauppbyggingu

  4. Óþarfa leyfisskylda gæti hamlað þörungarannsóknum

  5. Nýr liður á FramVest: Heimamenn elska

  6. Það er pláss fyrir fleiri fyrir vestan

Um Framfarafélag Vestfjarða

Á Vestfjörðum má finna öflugt atvinnulíf og frábær búsetuskilyrði. Svæðið á þó ennþá fullt inni og tækifærin leynast víða. Framfarafélag Vestfjarða vill vekja athygli á uppbyggingunni í fjórðungnum og segja frá fólkinu, fyrirtækjunum og verkefnunum sem standa að baki henni.

Þegar Vestfjörðum vegnar vel, vegnar Íslandi vel.

Um félagið

Slakir innviðir skerða lífsgæði

Innviðaskuld á Vestfjörðum leiðir til ótryggra samgangna og aðgengi að orku, sjálfsagðra lífsgæða sem Íslendingar vilja búa við. Ævintýralegur uppgangur Vestfirsks atvinnulífs síðustu misseri var mögulegur þrátt fyrir slaka innviði. En nú er lag að bæta.

  • 140%

    Aukning í tekjum 100 stærstu fyrirtækja Vestfjarða á árunum 2016-2022.

    Gögn: Hagstofan.

  • 81%

    Fjöldi íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum sem veigra sér að fara milli byggðarlaga að vetri til.

    Gögn: KPMG / Vestfjarðastofa

  • 61

    Fjöldi snjóflóða sem féllu á Súðavíkurhlíð árið 2018.

    Gögn: KPMG / Vestfjarðastofa

Þess vegna leggur Framfarafélagið áherslu á að efla atvinnulíf, nýsköpun og fjárfestingar á Vestfjörðum, ásamt því að krefjast bættra innviða og samgangna sem styðja við verðmætasköpun og bæta lífsgæði íbúa landshlutans.