Framtíðarstarfið gæti beðið þín fyrir vestan
Nýlega heimsótti hópur ungra kvenna úr atvinnulífinu Ísafjarðarbæ og Bolungarvík á vegum Framfarafélagsins og fengu góða innsýn inn í atvinnulíf sem og daglegt líf á svæðinu. Melkorka Mist Gunnarsdóttir, sérfræðingur í próteintækni hjá ORF Genetics, var ein þeirra og telur mikilvægt að gefa fólki af höfuðborgarsvæðinu kost á slíkri innsýn. Í aðsendri grein á Vísi bendir hún á að tengja þurfi atvinnusvæði landsins betur saman, svo ungt fólk í atvinnuleit hafi úr fleiri störfum að velja. Hennar orð hér að neðan:
„Um daginn fór ég í ferð vestur á firði ásamt hópi kvenna úr Ungum athafnakonum. Eins og flestar bjóst ég við fallegri náttúru, kyrrð og fámennum bæjum. Það stóðst vissulega en ég upplifði líka fjölbreytt og öflugt atvinnulíf sem ég vissi lítið sem ekkert um.
Í kjölfarið las ég grein hér á Vísi eftir ungan Ísfirðing um það hvað þarf til að ungt fólk snúi aftur heim að loknu námi. Hann benti réttilega á að fólk þyrfti að geta fundið góða vinnu og séð tækifæri til lengri tíma til að vilja snúa heim.
Þetta fékk mig til að hugsa um fólk sem hefur aldrei búið á landsbyggðinni. Ef þau sem eiga þar rætur sjá ekki endilega tækifærin fyrr en þau koma aftur í heimsókn, hvernig er þá með þau sem þekkja engan á svæðinu? Hvernig fá þau að vita af störfunum og lífinu sem gæti beðið þeirra þar?
Að sjá með eigin augum
Á einum degi fengum við að kynnast fjórum ólíkum fyrirtækjum. Við sigldum að eldiskvíum Háafells í Ísafjarðardjúpi, fengum kynningu á lækningavörum úr þorskroði hjá Kerecis á Ísafirði og heimsóttum loks útgerð og fiskvinnslu Jakobs Valgeirs og mjólkurvinnsluna Örnu í Bolungarvík.
Það sem skipti mig mestu máli var að fá að koma inn á vinnustaðina og heyra fólkið sjálft segja frá því sem það gerir. Þannig fékk ég miklu skýrari mynd af störfunum á svæðinu en nokkur frétt hefði getað gefið mér. Í fréttum heyrum við oft af áskorunum svæðisins en sjaldnar af fólkinu og blómlega lífinu þar.
Tækifærin eru þegar til staðar
Tölurnar renna stoðum undir það sem ég upplifði. Samkvæmt Sóknaráætlun Vestfjarða 2025–2029 hafa atvinnutekjur aukist, fyrirtækjum fjölgað og háskólamenntuðum íbúum sömuleiðis. Eftir tímabil fólksfækkunar fjölgar Vestfirðingum nú á ný.
Framtíðin veltur þó á ungu fólki. Í stöðumati fyrir svæðisskipulag Vestfjarða er gert ráð fyrir að fjölgunin verði fyrst og fremst drifin áfram af fólki á aldrinum 20–40 ára sem flytur vestur. Það gerist þó aðeins ef störfum heldur áfram að fjölga og nægt húsnæði er til staðar.
Hvernig tengjum við þetta betur?
Eftir ferðina sat ein spurning eftir hjá mér. Ég og samferðakonur mínar störfum í ólíkum geirum atvinnulífsins en samt vissum við lítið um raunveruleg starfstækifæri á Vestfjörðum, eða annars staðar úti á landi ef út í það er farið.
Ég held að hluti lausnarinnar felist í því að segja fleiri sögur af fólkinu og störfunum. Við hvað er fólk að vinna? Hvaða verkefni eru í gangi? Hvaða þekkingu vantar? Fyrirtækin fyrir vestan mega láta meira í sér heyra og vera stoltari af því sem þau hafa byggt upp.
Kerecis sýnir að það er hægt að byggja upp fyrirtæki á Vestfjörðum sem nær langt. Slíkar sögur geta hvatt fleiri frumkvöðla og fjárfesta til að líta vestur. Kynningarferðir eins og sú sem ég fór í eru líka góð leið til að opna augu fólks, því það jafnast ekkert á við að sjá hlutina með eigin augum.
Svar mitt við spurningunni sem sat eftir er því þetta: Við þurfum að segja sögurnar, opna dyrnar og bjóða fólki að koma og sjá.
Ný sýn á Vestfirði
Ég fór vestur til að kynnast atvinnulífinu og kom heim með nýja sýn. Vestfirðir eru ekki aðeins áfangastaður að sumri til heldur svæði með fjölbreytt atvinnulíf og samfélag sem tekur vel á móti fólki. Þess vegna getur ungt fólk vel horft þangað þegar það hugar að framtíð sinni, ekki síst nú þegar samgöngur vestur hafa aldrei verið betri. Við erum eitt land og eitt atvinnusvæði og tækifærin fyrir vestan gætu verið mun fleiri en þig grunar.“
Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér.