„Svona tækifæri hefði verið fágætt hér áður“
Emil Ólafur Ragnarsson og eiginkona hans fluttu nær fyrir tilviljun aftur á Vestfirði. Í dag búa þau með börnum sínum á Flateyri, þar sem þau hafa keypt draumahúsið, fundið sig í samfélaginu og byggt upp starfsferil. Emil er rekstrarstjóri Drimlu, laxasláturhúss Arctic Fish í Bolungarvík, og segir uppbyggingu laxeldis hafa skapað atvinnutækifæri sem áður voru fágæt á svæðinu. Hann telur mikilvægt að í umræðunni um atvinnugreinina gleymist ekki fólkið og samfélögin sem hafa byggst upp í kringum hana.
Það var eiginlega fyrir tilviljun sem Emil og Hildur ákváðu að flytja aftur vestur. Ættingjar og vinir Hildar höfðu staðið fyrir herferð á Facebook til að finna leikskólastjóra á Flateyri og hjónunum datt í hug að benda vinkonu hennar á starfið.
Vinkonan fékk starfið en í ráðningarferlinu áttuðu hjónin sig á því að þau langaði sjálf að flyttra aftur vestur. Þau eru bæði uppalin á Vestfjörðum og þekktu því vel til lífsins í landshlutanum.
„Lífið hér hefur reynst okkur mjög vel. Við áttum eitt barn þegar við fluttum og síðan hefur annað bæst í hópinn. Fyrsta árið leigðum við hús, en í desember 2024 keyptum við draumahúsið okkar. Það hefði verið mun erfiðara fyrir sunnan. Ég get því ekki sagt að það væsi um okkur hér,“ segir Emil.
Dóttirin getur vappað áhyggjulaus um bæinn
Emil segir mannlífið á Flateyri eitt af því besta við búsetuna. Þrátt fyrir smæð bæjarins sé þar mikið um að vera allt árið.
„Við höfum eina krá, tvö kaffihús og verslun sem er opin allan sólarhringinn. Hér eru skóli og leikskóli og það þarf ekki að bíða í röð eftir plássi. Dóttir okkar, sem er sex ára, getur vappað um bæinn áhyggjulaus eins og hún vill. Svo er hér frábær sundlaug, skautasvell, róló og fleira.“
Hann segir jafnframt auðvelt að taka virkan þátt í samfélaginu. Sjálfur hefur hann meðal annars komið að bæjarhátíð Flateyringa og uppsetningu Stútungs, þorrablótsins á Flateyri.
„Í svona litlu samfélagi skiptir hver og einn máli og það er gaman að geta lagt sitt af mörkum.“
Frá rafmagnsvinnu í rekstrarstjórn
Þegar hjónin ákváðu að flytja vestur hafði Hildur þegar ráðið sig sem leikskólakennara á Flateyri, en hún tók síðar við stöðu leikskólastjóra. Emil vantaði hins vegar vinnu.
Vinir hans fyrir vestan bentu honum á tækifæri í laxeldinu og hann hafði samband við góðan vin sem starfaði sem tæknistjóri hjá Drimlu, nýju laxasláturhúsi Arctic Fish í Bolungarvík.
„Hann var mjög feginn að heyra í manni með reynslu af rafmagnsvinnu. Þá tók við mikil törn við að tilkeyra nýtt sláturhús. Það var mikill og skemmtilegur skóli og ég lærði virkilega margt um vinnslu á laxi, bæði tæknilega og rekstrarlega.“
Í nóvember 2025 tók Emil við starfi rekstrarstjóra Drimlu. Þar ber hann ábyrgð á daglegum rekstri vinnslunnar, fylgist með afköstum og gæðum, heldur utan um starfsmannamál og vaktir og sinnir meðal annars matvælaöryggi, úttektum og öryggismálum vegna útflutnings á ferskum laxi með flugi.
Hann lýsir starfinu sem krefjandi en skemmtilegu og segir samstarfið innan fyrirtækisins gott.
„Vinnustaðurinn er góður og ekki mjög formfastur. Við vinnum mikið saman sem lið og við sem stjórnum tökum ákvarðanir að miklu leyti í sameiningu. Það er skemmtilegt og opnar margar dyr.“
Börnum á leikskólanum hefur fjölgað verulega
Aðspurður um þýðingu laxeldisins fyrir fjölskyldu sína og samfélagið á Flateyri segir Emil áhrifin augljós.
„Allar mínar tekjur koma frá laxeldinu, svo það hefur óneitanlega mjög mikla þýðingu fyrir heimilið okkar.“
Hann segir uppbyggingu atvinnugreinarinnar hafa haft sýnileg áhrif á samfélögin fyrir vestan, meðal annars á fjölda barna í skólum.
„Þegar við fluttum voru sex eða sjö börn á leikskólanum á Flateyri, en nú nálgast þau tuttugu. Sömu sögu er að segja frá Þingeyri, þar sem við ólumst upp. Þar hefur fjöldi barna í grunnskólanum tvöfaldast á stuttum tíma.“
Á Flateyri starfi nokkrir í laxeldinu á mismunandi stöðum og auk þess hafi verktakar atvinnu af starfseminni.
Að hans mati hefur greinin þannig skapað ný tækifæri fyrir fólk sem vill búa á Vestfjörðum, meðal annars í tæknistörfum og rekstri.

„Raunveruleikinn er flóknari en það“
Emil segir umræðuna um laxeldi oft fara fram fjarri þeim samfélögum þar sem starfsemin er umfangsmest.
„Mér finnst umræðan oft fara fram fyrir sunnan, af fólki sem hefur aldrei komið inn í sláturhús eða séð hvað hefur gerst í bæjunum hér fyrir vestan. Röddum þeirra sem búa hér og vinna í greininni er sjaldan gefið mikið pláss.“
Hann leggur þó áherslu á að gagnrýni á umhverfisáhrif atvinnugreinarinnar eigi fullan rétt á sér og að fyrirtækin verði að taka hana alvarlega.
„Það er eðlilegt og gott að fólk láti sig umhverfið varða og greinin þarf að taka gagnrýni alvarlega. En umræðan verður oft svart-hvít: annaðhvort er laxeldi alslæmt eða algott. Raunveruleikinn er flóknari en það.“
Emil gagnrýnir jafnframt að sum samtök sem segjast standa vörð um villta laxastofna einblíni um of á neikvæða umfjöllun um atvinnugreinina.
Hann telur fyrirtækin sjálf leggja sig fram um að miðla upplýsingum um starfsemina, meðal annars með birtingu myndefnis og ársskýrslna, en segir þær upplýsingar ekki alltaf ná í gegn í opinberri umræðu.
„Sjálfur finn ég stundum fyrir því að fólk hefur sterkar skoðanir á því sem ég vinn við án þess að vita mikið um það. Ég reyni að taka því vel og útskýra frekar en að fara í vörn.“
„Á bak við greinina eru fjölskyldur“
Þegar Emil er spurður hvað helst vanti í þá mynd sem almenningur fái af laxeldinu er svarið skýrt.
„Það sem mér finnst helst vanta í myndina er fólkið. Á bak við greinina eru fjölskyldur sem hafa getað flutt aftur heim, skólar sem voru að tæmast en eru að fyllast aftur og bæir sem voru á undanhaldi en eru núna að vaxa.“
Hann bendir á að hjá Drimlu starfi fólk með fjölbreytta menntun og reynslu, meðal annars rafvirkjar, vélvirkjar, tæknimenn, gæðafólk og stjórnendur. Slík atvinnutækifæri hafi verið mun færri á Vestfjörðum fyrir nokkrum árum.
„Sjálfur kom ég inn við að tilkeyra húsið og er núna rekstrarstjóri. Svona tækifæri hefði verið fágætt hér áður.“
Hann segir einnig að kröfur um matvælaöryggi í laxavinnslu séu meiri en margir geri sér grein fyrir. Starfsemin sæti reglulegum og ströngum alþjóðlegum úttektum og þrif og sýnatökur séu hluti af daglegum rekstri.
„Laxinn fer á borð víða um heim og það þarf allt að standast.“
Emil bendir jafnframt á að í sláturhúsinu starfi fólk af fjölbreyttum uppruna. Í umræðunni sé stundum talað um farandverkamenn, en sú lýsing eigi ekki við um starfsfólkið hjá þeim.
„Þetta er fólk af erlendum uppruna sem bjó hér fyrir, og sumir hafa komið og sest hér að. Það tekur þátt í samfélaginu eins og hver annar íbúi.“
Bendir á loftslagsspor laxaframleiðslu
Emil telur einnig að loftslagsspor eldislax fái ekki alltaf nægilega athygli í umræðunni.
Hann segir að framleiðsla á hverju kílói af eldislaxi skilji eftir sig um fjögur kíló af koltvísýringsígildum, samanborið við um 30 kíló við framleiðslu nautakjöts og 12 kíló við framleiðslu svínakjöts. Þá þurfi að hans sögn um 1,2 til 1,5 kíló af fóðri til að eldislax þyngist um eitt kíló, en sex til tíu kíló í tilfelli nautgripa.
Þessar tölur nefnir Emil sem dæmi um atriði sem hann telur mikilvægt að hafa í huga þegar fjallað er um atvinnugreinina og áhrif hennar.
Fyrir honum snýst umræðan þó ekki síður um þau tækifæri sem hafa skapast fyrir fólk sem vill setjast að á Vestfjörðum. Hans eigin saga er dæmi um það: flutningar sem hófust nánast fyrir tilviljun leiddu til þess að fjölskyldan fann sér heimili á Flateyri og hann sjálfur nýjan starfsvettvang í Bolungarvík.
