Ný sjálfbærniviðmið geti unnið gegn uppbyggingu 

Framfarafélag Vestfjarða varar við því að fyrirhugaðir mælikvarðar stjórnvalda á sjálfbærni sveitarfélaga geti gefið skakka mynd af stöðu þeirra og jafnvel unnið gegn atvinnuuppbyggingu og fjárfestingum. Félagið hafnar sérstaklega tillögu um að verndarsvæði þurfi að ná yfir að minnsta kosti 30% lands sveitarfélaga og telur óeðlilegt að sveitarfélög gjaldi fyrir skort á samgöngum, raforku og öðrum innviðum sem ríkið ber ábyrgð á. 

Þetta kemur fram í umsögn Framfarafélags Vestfjarða um umræðuskjal innviðaráðuneytisins um ný viðmið fyrir sjálfbæra þróun sveitarfélaga, sem birt var í Samráðsgátt stjórnvalda. 

Í umræðuskjalinu eru lagðir til 30 mælikvarðar sem eiga að varpa ljósi á efnahagslega, samfélagslega og umhverfislega sjálfbærni sveitarfélaga. Markmiðið er að auðvelda sveitarfélögum að meta stöðu sína og móta stefnu til framtíðar. 

Framfarafélagið telur samræmda mælikvarða geta nýst við stefnumótun en varar við því að þeir verði notaðir án tillits til ólíkra aðstæðna sveitarfélaga. Sömu hlutfallstölur segi ekki endilega sömu sögu í sveitarfélögum þar sem landfræðilegar aðstæður, fjarlægðir og aðgengi að grunnþjónustu eru gjörólík. 

Á Vestfjörðum geti miklar vegalengdir, veðurfar og takmörkuð stærðarhagkvæmni aukið kostnað við rekstur grunnþjónustu og uppbyggingu innviða. Sé ekki tekið tillit til þess sé hætta á að mælikvarðarnir endurspegli fremur aðstæður sem sveitarfélög ráða litlu um en raunverulega fjárhagsstöðu þeirra og möguleika til framtíðaruppbyggingar. 

Félagið leggur jafnframt áherslu á að viðmiðin verði áfram leiðbeinandi. Þau eigi hvorki að verða sjálfstæður grundvöllur íþyngjandi ákvarðana né þrengja að lögbundinni sjálfstjórn sveitarfélaga. 

Hafna 30% viðmiði um verndarsvæði 

Ein af afdráttarlausustu athugasemdum Framfarafélagsins snýr að tillögu um að hlutfall verndarsvæða verði notað sem mælikvarði á sjálfbærni sveitarfélaga, með viðmiði um að verndarsvæði nái yfir að minnsta kosti 30% lands. 

Félagið hafnar því að umfang friðunar sé notað sem sjálfstæður mælikvarði á sjálfbæra þróun sveitarfélaga og leggur til að viðmiðið verði fellt brott. 

„FV hafnar því að stærð eða hlutfall verndarsvæða sé notað sem mælikvarði á sjálfbæra þróun sveitarfélaga og leggur til að 30% viðmiðið verði fellt brott,“ segir í umsögninni. 

Framfarafélagið bendir á að hátt hlutfall verndarsvæða jafngildi ekki sjálfkrafa árangri í sjálfbærri þróun. Þvert á móti geti slíkt viðmið skapað ranga hvata með því að verðlauna umfang friðunar án þess að horft sé til raunverulegs ávinnings eða þeirra tækifæra til atvinnuuppbyggingar og ábyrgrar auðlindanýtingar sem kunna að glatast. 

Félagið viðurkennir að friðun geti verið nauðsynleg til að vernda mikilvæg náttúruverðmæti, en telur að árangur í náttúruvernd verði ekki metinn út frá flatarmáli verndarsvæða einu saman. 

Á Vestfjörðum séu víðfeðm landsvæði og mikil tækifæri til ábyrgrar nýtingar náttúruauðlinda sem geti skapað störf, styrkt atvinnulíf og bætt lífskjör íbúa. 

Í stað fasts hlutfallsviðmiðs vill félagið að horft verði til raunverulegs árangurs í náttúruvernd, ábyrgri auðlindanýtingu og efnahagslegri og samfélagslegri þróun. 

Sveitarfélög gjaldi ekki fyrir innviðaskort 

Framfarafélagið gagnrýnir jafnframt að fyrirhugaðir mælikvarðar taki ekki nægilegt tillit til þeirra grunninnviða sem ráða miklu um möguleika sveitarfélaga til vaxtar og uppbyggingar. 

Félagið leggur sérstaka áherslu á að við mat á sjálfbærni verði horft til heilsárssamgangna, aðgengis að grunnþjónustu, afhendingaröryggis raforku og fjarskiptasambands. 

Þessir innviðir geti ráðið úrslitum um búsetu, atvinnurekstur og fjárfestingar. Samgöngurof eða takmörkuð flutningsgeta raforkukerfisins geti þannig komið í veg fyrir frekari uppbyggingu þótt eftirspurn og atvinnutækifæri séu til staðar. 

Félagið bendir á að ábyrgð á þessum innviðum liggi í mörgum tilvikum hjá ríkinu eða aðilum á þess vegum. Því verði að greina á milli þeirra verkefna sem heyra undir sveitarstjórnir og aðstæðna sem þær hafa takmörkuð úrræði til að bæta úr. 

„Slík staða kallar á skýra greiningu á ábyrgð og úrbótaþörf, ekki neikvæða einkunn gagnvart þeim sveitarfélögum sem í hlut eiga,“ segir í umsögninni. 

Að mati Framfarafélagsins eiga mælikvarðarnir að draga fram hindranir í vegi uppbyggingar og stuðla að úrbótum, fremur en að gera sveitarfélög ábyrg fyrir skorti á innviðum sem standa utan áhrifasviðs þeirra. 

Húsnæðisskortur geti hamlað fólksfjölgun þrátt fyrir öflugt atvinnulíf 

Framfarafélagið gerir einnig athugasemd við fyrirhugaðan mælikvarða sem tekur mið af því hvort íbúum sveitarfélags hafi fjölgað undanfarin þrjú ár. 

Félagið bendir á að fólksfjölgun ráðist ekki eingöngu af atvinnuástandi eða aðdráttarafli sveitarfélaga. Skortur á íbúðarhúsnæði geti komið í veg fyrir fjölgun íbúa jafnvel þótt atvinnulífið vaxi og áhugi á búsetu sé mikill. 

„Skortur á íbúðum getur takmarkað fjölgun íbúa þótt atvinnutækifærum fjölgi og eftirspurn eftir búsetu sé mikil,“ segir í umsögninni. 

Framfarafélagið vill því að þróun íbúafjölda verði metin í samhengi við húsnæðisframboð, atvinnuuppbyggingu og stöðu innviða. Þar þurfi meðal annars að skoða hvort skortur á byggingarlóðum, skipulagsferlar eða tafir við leyfisveitingar standi í vegi fyrir frekari uppbyggingu. 

Að mati félagsins væri varhugavert að túlka stöðnun eða fækkun íbúa sem sjálfstæða vísbendingu um skort á sjálfbærni án þess að greina ástæður þróunarinnar. 

Öflugt atvinnulíf og einkaframtak skapi forsendur fyrir fólksfjölgun, en stjórnvöld þurfi að tryggja að regluverk og innviðir styðji við þá þróun. 

Sérhæfing atvinnulífsins ekki sjálfkrafa veikleiki 

Framfarafélagið gerir jafnframt athugasemdir við mælikvarða sem byggjast á fjölbreytni atvinnulífs og fjárhagslegu sjálfstæði sveitarfélaga. 

Í tillögunum er meðal annars miðað við að samþjöppun atvinnulífs, mæld með svonefndum HHI-stuðli, sé undir ákveðnum mörkum. 

Félagið bendir á að þótt mikil samþjöppun geti aukið áhættu geti sérhæfing atvinnulífs jafnframt skapað stærðarhagkvæmni, aukna framleiðni og samkeppnisforskot. 

Atvinnulíf Vestfjarða byggist að stórum hluta á sjávarútvegi, fiskeldi og tengdri þjónustu. Þar séu jafnframt tækifæri til frekari uppbyggingar í ferðaþjónustu, framleiðslu, heilbrigðistækni og annarri nýsköpun. 

„Öflugar og sérhæfðar atvinnugreinar eiga ekki sjálfkrafa að teljast veikleiki í sjálfbærni sveitarfélaga,“ segir í umsögninni. 

Framfarafélagið telur því nauðsynlegt að greina á milli þeirrar áhættu sem fylgir samþjöppun atvinnulífs og þess efnahagslega styrks sem felst í öflugum og sérhæfðum atvinnugreinum. 

Sömu sjónarmið eigi við um tillögu þess efnis að reglulegar tekjur sveitarfélaga án framlaga úr Jöfnunarsjóði nemi meira en 60% heildartekna A-hluta. 

Félagið bendir á að Jöfnunarsjóði sé einmitt ætlað að jafna ólíka tekjuöflunarmöguleika og útgjaldaþörf sveitarfélaga. Framlög úr honum eigi því ekki sjálfkrafa að leiða til þess að sveitarfélög séu metin síður sjálfbær. 

Vara við aukinni stjórnsýslubyrði 

Framfarafélagið leggur einnig áherslu á að við útfærslu mælikvarðanna verði gætt meðalhófs, sérstaklega gagnvart fámennum sveitarfélögum. 

Starfsmannavelta og veikindahlutfall geti til að mynda gefið skakka mynd af stöðu þeirra, þar sem starfslok eða veikindi fárra einstaklinga geti haft mikil áhrif á hlutfallstölur. 

Félagið leggur því til að slík þróun verði metin yfir lengra tímabil og að fjöldi einstaklinga verði birtur samhliða hlutfallstölum þegar það á við. 

Jafnframt verði eftir föngum byggt á upplýsingum sem þegar liggja fyrir og sveitarfélögum ekki lagðar nýjar skyldur um skýrslugjöf nema sýnt hafi verið fram á skýra þörf og ávinning. 

Geti snúist upp í andhverfu sína 

Í niðurlagi umsagnarinnar leggur Framfarafélag Vestfjarða áherslu á að sjálfbær byggðaþróun byggist á öflugu atvinnulífi, verðmætasköpun, skynsamlegri auðlindanýtingu, góðum lífskjörum og ábyrgri umgengni við náttúruna. 

Félagið telur því mikilvægt að mælikvarðar stjórnvalda taki mið af raunverulegum aðstæðum sveitarfélaga og nýtist til að greina hindranir og stuðla að úrbótum. 

Þeir eigi að styðja við ábyrga náttúruvernd, atvinnuuppbyggingu og nýfjárfestingar en ekki skapa nýjar hindranir fyrir sjálfbærri nýtingu lands og auðlinda. 

Framfarafélagið lýkur umsögn sinni með afdráttarlausri viðvörun: 

„Að öðrum kosti er hætt við því að tilgangur umræðuskjalsins, og afrakstur þess, snúist upp í andhverfu sína og vinni markvisst gegn sveitarfélögum og sjálfbærni þeirra.“ 

Umsögn Framfarafélags Vestfjarða er birt í heild sinni hér að neðan.