Framfarafélag Vestfjarða styður kröfur um laugardagsflug vestur

Framfarafélag Vestfjarða tekur undir gagnrýni Fjórðungsþings Vestfirðinga á skertar flugsamgöngur og mikilvægi þess að áætlunarflug til landshlutans taki mið af þörfum íbúa og atvinnulífs. „Greiðar og áreiðanlegar samgöngur eru ekki bara spurning um þægindi heldur grundvallarforsenda þess að Vestfirðir geti nýtt þau tækifæri sem hér eru til staðar,“ segir Guðmundur Fertram.

Á Fjórðungsþingi Vestfirðinga, sem haldið var á Patreksfirði í lok síðasta mánaðar, var samþykkt ályktun þar sem kallað var eftir laugardagsflugi til Ísafjarðar og fleiri flugferðum til Bíldudals.

Í ályktuninni var lýst ánægju með fjögurra ára samning sem undirritaður var í apríl um áætlunarflug til Ísafjarðar og tryggði flug til ársins 2030. Jafnframt voru gerðar athugasemdir við fækkun áætlunarferða, ekki síst til Bíldudals.

Samkvæmt nýja samningnum um flug til Ísafjarðar var gert ráð fyrir sjö hringferðum á viku yfir vetrarmánuðina og allt að tíu á sumrin. Lágmarksfjöldi ferða var þó um 28,5% minni en upphaflegt útboð gerði ráð fyrir.

Fjórðungsþingið lagði sérstaka áherslu á að flug til Vestfjarða væri ekki valkvæð þjónusta heldur mikilvægur hluti almenningssamgangna. Fyrir marga íbúa væri flug eina raunhæfa leiðin til að sækja heilbrigðisþjónustu, menntun og sinna öðrum erindum utan landshlutans innan dags.

Bent var á að skortur á laugardagsflugi til Ísafjarðar takmarkaði möguleika íbúa, ferðamanna og menningarstarfs á norðanverðum Vestfjörðum. Þá var kallað eftir því að tryggðar yrðu tvær flugferðir á dag til Bíldudals að minnsta kosti tvo daga í viku, svo íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum gætu farið fram og til baka samdægurs án þess að þurfa að leggja út fyrir gistingu.

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, talsmaður Framfarafélags Vestfjarða, segir félagið taka heilshugar undir þessar kröfur. Öflugar og áreiðanlegar flugsamgöngur séu ein af grunnforsendum þess að atvinnulíf og byggð geti haldið áfram að vaxa á Vestfjörðum.

„Tíðar og reglulegar flugsamgöngur til Ísafjarðar eru mikilvægur hluti þeirrar grunnþjónustu sem íbúar og atvinnulíf eiga að geta treyst á. Það gengur ekki að fólk og fyrirtæki á Vestfjörðum búi við skert aðgengi að samgöngum einfaldlega vegna þess hvar á landinu þau eru staðsett,“ segir Guðmundur Fertram.

Hann segir að horfa verði á flugsamgöngur í samhengi við framtíðaruppbyggingu landshlutans og samkeppnishæfni hans.

„Við erum að leggja mikla áherslu á að laða fólk, fyrirtæki og fjárfestingar til Vestfjarða. Þá verðum við líka að tryggja að innviðirnir fylgi þeirri uppbyggingu. Greiðar og áreiðanlegar samgöngur eru ekki bara spurning um þægindi heldur grundvallarforsenda þess að Vestfirðir geti nýtt þau tækifæri sem hér eru til staðar,“ segir Guðmundur Fertram.