Launagreiðslur í fiskeldi á Vestfjörðum nær sjötugfaldast á sautján árum
Launagreiðslur úr fiskeldi til íbúa Vestfjarða hafa nær sjötugfaldast frá árinu 2008 og námu tæplega 3,5 milljörðum króna á síðasta ári. Á sama tíma hefur launþegum í greininni fjölgað um tæplega 1.500%. Þetta kemur fram í nýrri og ítarlegri greiningu Framfarafélags Vestfjarða á þróun fiskeldis og efnahagslegum áhrifum greinarinnar á landshlutann.
Greiningin, sem byggir meðal annars á staðgreiðslugögnum Hagstofu Íslands og ársreikningum helstu eldisfyrirtækja, dregur upp mynd af einni umfangsmestu atvinnuuppbyggingu sem átt hefur sér stað á Vestfjörðum undanfarna tvo áratugi.
Morgunblaðið fjallaði um greiningu félagsins í blaði dagsins og geta áskrifendur lesið þá umfjöllun hér.
Árið 2008 fengu að meðaltali aðeins 18 íbúar Vestfjarða laun úr fiskeldi í hverjum mánuði. Árið 2025 voru þeir orðnir 293. Fjölgunin nemur 1.491% á sautján árum.
Á sama tímabili jukust árlegar launagreiðslur úr um 50 milljónum króna í 3.482 milljónir króna, eða nær sjötugfalt. Fjárhæðirnar eru á verðlagi hvers árs og því ekki leiðréttar fyrir verðbólgu.

Vöxturinn hefur jafnframt haldið áfram á þessu ári. Fyrstu átta mánuði ársins 2026 fengu að meðaltali 318 Vestfirðingar laun úr fiskeldi á hverjum mánuði, samanborið við 286 á sama tímabili í fyrra. Það jafngildir rúmlega 11% fjölgun á einu ári.
Launagreiðslurnar jukust á sama tíma um 16% og námu tæplega 2,6 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins.

Launagreiðslur hafa vaxið hraðar en almennt launastig
Greiningin sýnir jafnframt að reiknaðar launagreiðslur á hvern launþega í fiskeldi hafa hækkað verulega.
Árið 2008 námu þær að meðaltali um 226 þúsund krónum á mánuði en voru komnar í um 991 þúsund krónur árið 2025. Það jafngildir 338% hækkun á sama tíma og almenn launavísitala á Íslandi hækkaði um 214%.
Hér er þó ekki um að ræða samanburð á grunnlaunum fyrir fullt starf, heldur heildarlaunagreiðslur deilt með fjölda launþega. Vinnumagn, yfirvinna og breytt samsetning starfa geta því haft áhrif á þróunina.
Uppbygging fiskeldis hefur einnig skapað fjölbreytt störf utan eldisfyrirtækjanna sjálfra. Þar má nefna vinnslu, flutninga, hafnarþjónustu, netagerð, viðhald og sérhæfða þjónustu.
Þessi afleidda atvinnustarfsemi er ekki að fullu talin með í tölunum um launþega í fiskeldi. Efnahagsleg áhrif greinarinnar á Vestfirði kunna því að vera talsvert meiri en beinar launagreiðslur gefa til kynna.

Ný störf hafa styrkt byggð á Vestfjörðum
Fjölgun starfa hefur einnig átt þátt í að breikka atvinnugrunn Vestfjarða og skapa ný tækifæri fyrir ungt fólk og fjölskyldur.
Íbúum Vestfjarða hafði fækkað úr 7.336 árið 2008 í 6.870 árið 2017. Frá þeim tíma hefur þróunin snúist við og í ársbyrjun 2025 voru íbúarnir orðnir 7.176, sem jafngildir 4,5% fjölgun frá árinu 2017.
Ekki er hægt að rekja þá fjölgun til fiskeldis eins og sér, enda hafa aðrar atvinnugreinar, meðal annars ferðaþjónusta og starfsemi Kerecis, einnig stuðlað að uppbyggingu og fjölgun starfa.
Engu að síður sýnir greiningin að fiskeldi hefur orðið ein af stærstu uppsprettum nýrra starfa og launatekna á Vestfjörðum á undanförnum árum.

Mikill vöxtur en taprekstur hjá stærstu fyrirtækjunum
Þrátt fyrir umfangsmikla uppbyggingu og vaxandi umsvif hefur rekstur stærstu fiskeldisfyrirtækjanna verið erfiður.
Samkvæmt greiningunni töpuðu Arctic Fish og Icelandic Salmon, móðurfélag Arnarlax, samtals 49,9 milljónum evra á árinu 2025, jafnvirði nokkurra milljarða íslenskra króna.
Þá nam samanlagt tap þessara tveggja fyrirtækja og Kaldvíkur, sem starfar á Austfjörðum, rúmlega 90 milljónum evra á síðasta ári.
Afkoman hefur meðal annars litast af líffræðilegum áskorunum, sveiflum í markaðsverði, miklum fjárfestingum og fjármagnskostnaði.
Framleiðslan hefur engu að síður aukist hratt. Arctic Fish slátraði 14.791 tonni árið 2025, tæplega fjórfalt meira magni en árið 2019. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam slátrað magn 15.613 tonnum og var því þegar orðið meira en á öllu síðasta ári.
Afkoman hefur einnig tekið að batna. Rekstrarafkoma Arctic Fish fyrir fjármunaliði og skatta, að undanskildum tilteknum reikningsskilaliðum, var neikvæð um 5,3 milljónir evra fyrstu níu mánuði ársins 2026, samanborið við 10,5 milljóna evra tap á sama tímabili í fyrra.
Bata í rekstri hefur því fylgt áframhaldandi framleiðsluvöxtur, þótt félagið hafi enn ekki náð jákvæðri rekstrarafkomu á þessu tímabili.
Sértæk gjöld nema um 1,5 milljörðum króna
Í greiningunni er jafnframt fjallað um sértæka gjaldtöku af fiskeldi og mikilvægi þess að hún taki mið af rekstrarskilyrðum greinarinnar og fjárfestingarþörf.
Samkvæmt samantekt Arctic Fish, sem Bæjarins besta hefur greint frá, námu sértæk gjöld vestfirskra fiskeldisfyrirtækja vegna ársins 2025 um 1,5 milljörðum króna.
Til samanburðar var sveitarfélögum á Vestfjörðum úthlutað 340,4 milljónum króna úr Fiskeldissjóði árið 2026 til uppbyggingar innviða.
Hafa verður í huga að fjárhæðirnar ná til ólíkra tímabila, gjaldstofna og viðtakenda og eru því ekki bein mæling á því hversu stór hluti gjaldanna skilar sér aftur til landshlutans.
Greiningin undirstrikar þó mikilvægi þess að sveitarfélög þar sem fiskeldi er stundað hafi fjárhagslegar forsendur til að byggja upp þá innviði og þjónustu sem vaxandi atvinnustarfsemi kallar á.
Verðmætasköpun sem þarf að standa á traustum grunni
Meginniðurstaða Framfarafélags Vestfjarða er að fiskeldi hafi á innan við tveimur áratugum þróast úr tiltölulega lítilli atvinnustarfsemi í eina af mikilvægustu efnahagslegu stoðum Vestfjarða.
Hundruð íbúa hafa nú atvinnu af greininni, milljarðar króna renna árlega til heimila á svæðinu og aukin umsvif hafa skapað ný tækifæri fyrir fyrirtæki og sveitarfélög.
Á sama tíma sýnir erfið afkoma stærstu fyrirtækjanna að áframhaldandi vöxtur er ekki sjálfgefinn.
Til að tryggja að sú atvinnuuppbygging sem þegar hefur átt sér stað verði varanleg leggur félagið áherslu á fyrirsjáanlegt regluverk, sterka innviði, ábyrga umhverfisvernd, bætt líffræðilegt öryggi og samkeppnishæf rekstrarskilyrði.
Áskorunin er ekki lengur aðeins að skapa ný störf í fiskeldi, heldur að tryggja að þau störf, launatekjur og tækifæri sem byggst hafa upp á Vestfjörðum standi á traustum grunni til framtíðar.