„Það er ekki hlutverk fyrirtækja að sanna að þau eigi að fá að starfa“
Framfarafélag Vestfjarða telur að stjórnvöld þurfi að leggja ríkari áherslu á efnahagsleg áhrif ferðaþjónustu og verðmætasköpun þegar ákvarðanir eru teknar um skatta, gjöld og takmarkanir á atvinnustarfsemi. Sérstaklega þurfi að rannsaka áhrif skemmtiferðaskipa á atvinnulíf Vestfjarða áður en frekari álögur eru lagðar á greinina.
Þetta kemur fram í umsögn félagsins um drög að rannsóknaráætlun Ferðamálastofu fyrir árin 2026–2028, sem send var atvinnuvegaráðuneytinu 17. nóvember.
Í umsögninni er lögð áhersla á að rannsóknir og gagnaöflun skili hagnýtum upplýsingum sem nýtist fyrirtækjum og fjárfestum. Jafnframt þurfi stjórnvöld að byggja ákvarðanir um gjaldtöku og takmarkanir á traustum og gagnsæjum forsendum.
„Það er ekki hlutverk fyrirtækja að sanna að þau eigi að fá að starfa, heldur stjórnvalda að rökstyðja ítarlega hvers vegna nauðsynlegt sé að skerða atvinnufrelsi eða leggja nýjar fjárhagslegar byrðar á reksturinn,“ segir í umsögninni.
Skipakomur skapa verðmæti langt út fyrir hafnarsvæðin
Framfarafélagið telur sérstaklega mikilvægt að rannsóknir á skemmtiferðaskipum taki ekki eingöngu mið af fjölda skipakoma og farþega, heldur einnig tekjum hafna, útgjöldum ferðamanna og áhrifum á fyrirtæki í nærliggjandi byggðarlögum.
Félagið hefur áður vakið athygli á efnahagslegu mikilvægi skemmtiferðaskipa fyrir Vestfirði. Í frétt félagsins í október var fjallað um greiningu Teya sem sýndi að rekja mætti 55% af erlendri kortaveltu sumarsins hjá söluaðilum á Ísafirði til skipakomanna. Í nágrannabyggðum mældist erlend kortavelta jafnframt 52% meiri þá daga sem skemmtiferðaskip voru í höfn.
Í sömu umfjöllun kom fram að bókanir bentu til þess að farþegum skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar gæti fækkað um nær 40 þúsund árið 2027 miðað við árið 2024. Samkvæmt minnisblaði Ísafjarðarbæjar gæti sú þróun þýtt ríflega milljarði króna lægri samfélagslegar tekjur á ári.
Framfarafélagið telur þessar vísbendingar undirstrika mikilvægi þess að meta heildaráhrif skattlagningar, enda geti breytingar á gjöldum haft áhrif á viðkomustaði skipa, tekjur fyrirtækja og framtíðarfjárfestingar.
„Slíkar upplýsingar eru sérstaklega mikilvægar þegar stjórnvöld hyggjast breyta gjaldtöku eða setja starfseminni nýjar skorður,“ segir í umsögninni.
Rannsóknir þurfa að nýtast atvinnulífinu
Félagið leggur jafnframt til að niðurstöður rannsókna Ferðamálastofu verði eftir föngum birtar sérstaklega fyrir Vestfirði. Þar verði meðal annars horft til útgjalda ferðamanna, árstíðasveiflna, gistiframboðs og rekstrarafkomu fyrirtækja.
Slíkar upplýsingar geti bætt forsendur fjárfestinga og stuðlað að frekari uppbyggingu ferðaþjónustu í landshlutanum.
Í umsögninni er einnig fjallað um rannsóknir á þolmörkum ferðamannastaða. Framfarafélagið telur mikilvægt að meta álag á náttúru og innviði en bendir á að auknar fjárfestingar, bættar samgöngur og betra skipulag geti skapað svigrúm til frekari vaxtar.
Félagið varar við því að rannsóknir á þolmörkum verði sjálfkrafa grundvöllur nýrra takmarkana á atvinnustarfsemi, án þess að stjórnvöld hafi metið hvort vægari úrræði geti náð sama markmiði.
Fyrirtækin sjálf eigi að ákveða hvar tækifærin liggja
Framfarafélagið telur mikilvægt að opinber rannsóknarfjármunir nýtist með skilvirkum hætti og að forgangsraðað verði rannsóknum sem varpa ljósi á verðmætasköpun, rekstrarskilyrði og áhrif opinberra ákvarðana.
Í niðurlagi umsagnarinnar segir:
„Það er hlutverk fyrirtækja og fjárfesta að greina tækifæri, taka áhættu og skapa verðmæti.“
Stjórnvöld eigi hins vegar að tryggja skýrt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi og sýna fram á nauðsyn nýrra takmarkana eða fjárhagslegra byrða.
Framfarafélagið telur því að rannsóknaráætlun Ferðamálastofu eigi fyrst og fremst að bæta forsendur sjálfstæðra ákvarðana fyrirtækja og fjárfesta og styðja við áframhaldandi verðmætasköpun í ferðaþjónustu.
Hægt er að lesa umsögn Framvest hér.