Teitur Björn Einarsson, alþm. í Norðvesturkjördæmi ritar grein á Bæjarins besta um stöðu samgöngumála á Vestfjörðum. Segir hann óboðlegt að draga framkvæmdatíma á Dynjandisheiði og í Gufudalssveit um allt að þrjú ár og kallar eftir samgöngusáttmála fyrir Vestfirði.
Í greininni segir Teitur Björn:
„Eftir forskrift samgöngusáttmálans er það eðlileg krafa nú að ríkið komi að sáttmála um flýtingu á uppbyggingu innviða á Vestfjörðum með sveitarfélögum og einkaaðilum eftir atvikum og leggi fram ríkiseignir á svæðinu eins og gert var með Keldnalandið. Eignir ríkisins geta verið margs konar. Til að mynda þau verðmæti sem felast í útboði á framleiðsluheimildum í fiskeldi á Vestfjörðum sem eftir er að ráðstafa eða tiltekið hlutfall af veiðigjöldum sem falla til á svæðinu til næstu 16 ára.“
Ennfremur ritar Teitur Björn:
„Innviðaskuld ríkisins á Vestfjörðum er há og hana verður að greiða. Með breyttu viðhorfi og nálgun er hægt að flýta framkvæmdum, finna nýjar leiðir til fjármögnunar og forgangsraða með sanngjörnum hætti. Uppbygging samgönguinnviða setur stóraukinn kraft í alls konar verðmætasköpun á Vestfjörðum landsmönnum öllum til heilla og bætir lífsgæði íbúa til muna.“

