Í nýlegum hlaðvarpsþætti Björns Inga Hrafnssonar, Grjótkasti, þar sem saman voru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra, og Dagur B. Eggertsson, formaður Borgarráðs nefnir Dagur B. ákall Innviðafélags Vestfjarða um sérstakan samgöngusáttmála fyrir Vestfirði.
„Ég heyrði hér í útvaprinu á leiðinni hingað Vestfirðinga auglýsa eftir því að fá samgöngusáttmála fyrir Vestfirði. Ég held við eigum að taka þá á orðinu,“ segir Dagur – á mínútu 21:45.
Við vonumst að sjálfsögðu eftir því, og Innviðafélagið er reiðubúið til að aðstoða.

