Innviðafélag Vestfjarða lýsir verulegum áhyggjum af veiðigjaldafrumvarpi: Sanngjörn gjaldtaka sjálfsögð, en vanda verður til verka

Innviðafélag Vestfjarða hefur skilað inn umsögn til atvinnuveganefndar Alþingis vegna frumvarps um breytingar á lögum um veiðigjöld (mál nr. 351). Í umsögninni lýsir félagið yfir verulegum áhyggjum af áhrifum boðaðra hækkana á atvinnulíf og efnahagslega sjálfbærni á Vestfjörðum.

Vestfirðir hafa lagt mikið fram til samfélagsins. Öflug vestfirsk fyrirtæki, hvort heldur í sjávarútvegi, fiskeldi eða öðrum atvinnugreinum hafa skilað samfélaginu milljörðum. Fyrir liggur að vestfirsk sjávarútvegsfyrirtæki hafi greitt um 30 milljarða króna í skatta og opinber gjöld síðustu fimm árin og fyrir liggur að þessi upphæð mun vera tvöfalt hærri á næsta fimm ára tímabili vegna vaxtar Kerecis, laxeldis, útgerðar og fiskvinnslu. Íslenskt samfélag á mikið undir áframhaldandi fjárhagsstyrk sjávarútvegsins og sjávarbyggða. Einungis með arðsömu atvinnulífi munu allir njóta.

Innviðafélagið gerir ekki athugasemdir við sanngjarna gjaldtöku fyrir afnot af sameiginlegum auðlindum, en leggur áherslu á að allar breytingar verði að vera skýrar, fyrirsjáanlegar og í samræmi við raunveruleg rekstrarskilyrði atvinnugreinarinnar.

Helstu atriði í umsögn félagsins eru eftirfarandi:

  • Að bætt verði við þrepaskiptingu veiðigjaldahækkana, sem myndi gera fyrirtækjum og sveitarfélögum kleift að laga sig að breyttum aðstæðum.
  • Að skýrleiki og stöðugleiki í skattlagningu sé tryggður til að styðja við áætlanagerð og fjárfestingar í atvinnulífinu.
  • Gagnrýni á tengingu veiðigjalda við erlendar verðvísitölur sem geta haft ófyrirsjáanleg áhrif og spegla illa raunverulegar tekjur fyrirtækjanna.

Einnig eru í umsögninni settar fram skýrar kröfur um að auknar álögur á atvinnulíf landsbyggðarinnar skili sér í aukinni innviðauppbyggingu. Félagið telur mikilvægt að ríkisstjórnin standi við gefin fyrirheit um fjárfestingar í samgöngumannvirkjum, orkuinnviðum og annarri grunnstoð sem skiptir sköpum fyrir samkeppnishæfni svæðisins.

Það er mikilvægt að ríkisvaldið standi við gefin loforð um að nýta auknar skatttekjur í bráðnauðsynlega uppbyggingu innviða Vestfjarða, til að mynda vegi, jarðgöng, flugsamgöngur og orkuvinnviði.

Sjá má umsögnina í heild sinni á vef Alþingis.

Skráning á póstlista!

Skráning á póstlista Innviðafélags Vestfjarða.

Please wait…

Takk fyrir að skrá þig!