Innviðafélag Vestfjarða fagnar því að jarðgangnagerð á Íslandi sé loksins komin af stað með tillögum að skipulagsbreytingum vegna Fljótaganga á Siglufirði.
“Það ættu að vera, að lágmarki, ein göng í framkvæmd og tvenn í undirbúningi á hverjum tíma,” segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson, talsmaður Innviðafélags Vestfjarða. “Innviðaskuldin er slík, og lífsgæðaaukningin sem fylgir göngum það mikil, að löngu er orðið tímabært að spíta í lófana og rífa vinnuna í gang.”
Undirbúningur Fljótaganga var eitt fjögurra verkefna sem voru fjármögnuð sérstaklega í síðustu fjárlögum, en auk þeirra fengu göng milli Ísafjarðar og Súðavíkur fjárveitingu til undirbúnings. Innviðafélag Vestfjarða gerir því ráð fyrir að stutt sé í fyrstu fréttir af framgangi í þeim málum.
Þá telur Innviðafélag Vestfjarða mikilvægt að göngum sem stuðla að áframhaldandi efnahagsævintýri á Vestfjörðum og styðja við uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu verði sett í forgang. Þar má meðal annars nefna göng um Klettsháls eða tvöföldun Vestfjarðagangna milli Ísafjarðar og Flateyrar.
“Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur segist ætla að láta verkin tala. Með þessum nýlegu vendingum sýnist manni það halda, í málefnum jarðgangna. Verkstjórnin hlýtur að fylgja settu plani og kynna undirbúning Súðavíkurgangna á næstu vikum.”

