Heimamenn elska: Jón Guðni
Næstur til að segja okkur sín meðmæli er Jón Guðni Pálmason, vélstjóri í fiskvinnslunni Jakob Valgeir í Bolungarvík. Hann er giftur Kristínu Grétu Bjarnadóttur frá Bolungarvík og saman eiga þau þrjár dætur.

Nafn: Jón Guðni Pálmason
Hvar á Vestfjörðum býrðu? Ég bý á Ísafirði
1. Uppáhaldsmatur
Það er bara eitt sem kemur í hugann og það er Tjöruhúsið. Mæli persónulega með ufsanum og karfanum.

2. Uppáhalds útivistin
Ég byrjaði í golfi í sumar og hef mjög gaman af því. Golfvöllurinn í Tungudal er skammt frá heimilinu. Skotveiðin kemur þar fast á eftir – ef útivist má kalla?

3. Leynistaður
Naustahvilftin. Það er mjög gaman að ganga þar upp og njóta útsýnisins. Það sem gerir staðinn einstakan er þetta einstaka útsýni yfir fjörðinn og bæinn.

4. Uppáhalds afdrep
Eftir að hafa byrjað í golfinu í sumar, þá er það klárlega Golfvöllurinn í Bolungarvík, en best er að taka þar 9 holur á kvöldin. Þar er lognið svo mikið að það eina sem að angrar er flugan og eitt og eitt högg. Hér er ró og friður og bara stutt að komast í alla útivist, sama hvað það er.

Þökkum Jóni Guðna fyrir innsýn inn í sitt líf fyrir vestan!
© 2026 Framfarafélag Vestfjarða