„Markmiðið er að geta framleitt snjó í Tungudal haustið 2027“
Undirbúningur að snjóframleiðslu í Tungudal er langt kominn og gangi áætlanir eftir verður ráðist í framkvæmdir næsta sumar. Samhliða hefur verið unnið að endurnýjun rafbúnaðar í skíðalyftunum og nýr troðari er kominn á svæðið. Endurbæturnar eiga að skila áreiðanlegri rekstri, færri bilunum og betri gönguskíðasporum.
Ragnar Högni Guðmundsson, forstöðumaður Skíðasvæðis Ísafjarðarbæjar, segir í samtali við Framfarafélag Vestfjarða að undirbúningur útboðs vegna snjóframleiðslu sé langt kominn. Vonast sé til að útboðið fari af stað í desember og í kjölfarið verði gengið frá kaupum á snjóframleiðslukerfi og snjóbyssum.
„Gangi það eftir fara framkvæmdir fram næsta sumar. Markmiðið er að geta framleitt snjó í Tungudal haustið 2027.“
Áreiðanlegri lyftur og færri stopp
Mikil vinna hefur farið í endurnýjun stórs hluta rafbúnaðar í skíðalyftunum undanfarna mánuði. Að sögn Ragnars var þörfin orðin brýn.
„Rafbúnaðurinn var orðinn gamall og bilanir tíðar, sem gerði rekstur lyftanna erfiðan og óáreiðanlegan. Einnig var orðið mjög erfitt að finna orsök bilana þegar þær komu upp.“
Hann segir nýjan búnað bæði eiga að gera reksturinn áreiðanlegri og auðvelda starfsfólki að finna og laga bilanir. Markmiðið sé að fækka stoppum í lyftunum á opnunartíma og stytta þau þegar bilanir verða.
Nýr troðari bætir gönguskíðasporin
Nýr troðari er einnig kominn á svæðið og tilbúinn fyrir veturinn. Hann tekur við af troðara sem er að verða 20 ára, orðinn slitinn og þarfnast mikils viðhalds. Ragnar reiknar því með færri óvæntum bilunum í vetur.
Nýja vélin býður jafnframt upp á búnað sem á að bæta aðstæður fyrir gönguskíðafólk.
„Stærsti munurinn verður líklega í gönguskíðasporunum. Á nýja troðaranum er sérstök aukamylla framan við sporbúnaðinn en hún losar um harðan snjó áður en sporið er lagt.“
Þetta gerir starfsfólki kleift að leggja betur mótuð spor við aðstæður þar sem áður var erfitt að ná góðum árangri. Ragnar segir að með eldri búnaðinum hafi jafnvel þurft að vinna sama sporið margoft til að fá það gott.
Vonast til að opna í Tungudal fyrir jól
Gönguskíðavertíðin hófst á Seljalandsdal, en hlýindi síðustu daga urðu til þess að loka þurfti aftur. Þrátt fyrir það eru Ragnar og starfsfólk hans bjartsýn á veturinn framundan.
„Mann dreymir alltaf um að komast á skíði yfir jólin. Markmiðið hjá okkur er að opna í Tungudal fyrir jól og hafa opið fram á sumardaginn fyrsta. Það ræðst auðvitað af veðri og snjóalögum, en við erum bjartsýn og vonumst eftir betri skíðavetri en í fyrra.“

