Sé raunverulegur vilji til áframhaldandi vaxtar verður að tryggja samgöngur

Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar, ritar grein í Morgunblaðið og Vísi í dag þar sem hún gerir ótryggar samgöngur og vestfirska efnahagsævintýrið að efni.

Greinin, sem ber yfirskriftina „Getið þið ekki talað um eitthvað annað en þessa vegi!?“ vísar í athugasemd „ónefnds fulltrúa í samgöngunefnd Alþingis“ frá fundi nefndarinnar með kjörnum fulltrúum frá Vestfjörðum. „Svarið við þeirri spurningu var þá, og er enn, nei“

Samkvæmt gildandi samgönguáætlun átti framkvæmdum, sem mjög lengi hefur verið beðið eftir í Gufudalssveit, að ljúka árið 2023 og framkvæmdum á Dynjandisheiði átti að ljúka á árinu 2024. Nú vitum við að svo verður ekki og samkvæmt samþykktri samgönguáætlun sem legið hefur fyrir á þingi um hríð á þessum bráðnauðsynlegu framkvæmdum að ljúka árið 2026.

Ekki sé nóg með að ekki sé staðið við áætlanir sem gerir það að verkum að heimafólk þarf að keyra malarvegi hvort eð heldur til að komast suður til Reykjavíkur eða norður til Ísafjarðar, heldur sé vetrarþjónustu sömuleiðis mjög ábótavant.

Vetrarþjónusta vega á Vestfjörðum er sú allra slakasta á landinu og engin fordæmi fyrir styttri þjónustutíma vega í neinum öðrum landshluta.

Að lokum tekur hún undir ákall um Vestfjarðalínu.

Fagna ber hugmyndum Innviðafélags Vestfjarða um Vestfjarðalínuna, þær eru ákall um uppbyggingu jarðganga og annarra samgöngumannvirkja á Vestfjörðum sem líta ber á sem sérstakt og afmarkað viðfangsefni.

Greinina má lesa hér.

Skráning á póstlista!

Skráning á póstlista Innviðafélags Vestfjarða.

Please wait…

Takk fyrir að skrá þig!