Víkingur Gunnarsson starfsmaður hjá Arnarlax ritar grein í Morgunblaðið í dag sem ber yfirskriftina „Sjávarþorpin vakna“. Þar fjallar hann um efnahagsævintýrið á Vestfjörðum og segir þorpin vera að vakna. En sá vöxt­ur atvinnulífsins reyn­i mjög á samgönguinnviði. Vestfirsk fyrirtæki búi við skert afhendingaröryggi útflutningsafurða og aðfanga. Því þurfi samstillt átak í uppbyggingu samgönguinnviða á Vestfjörðum.

Grein Víkings er birt hér að neðan:

Ég er fædd­ur og upp­al­inn Vest­f­irðing­ur og hef séð og upp­lifað hvernig sjáv­arþorp Vest­fjarða hafa átt góða og slæma tíma í gegn­um árin. Ég hef tekið þátt í þeirri miklu upp­bygg­ingu frá ár­inu 2009 sem átti sér stað með til­komu fisk­eld­is með dugnaði starfs­manna fyr­ir­tækj­anna, út­sjón­ar­semi, trú inn­lendra og er­lendra fjár­festa á verk­efn­in og síðast en ekki síst með mikl­um stuðningi sam­fé­lags­ins hér fyr­ir vest­an. Okk­ur sem hóf­um þessa veg­ferð með metnaði og skýrri framtíðar­sýn varð strax ljóst að upp­bygg­ing­in þyrfti á íbú­un­um að halda. Áhrif­in hafa smátt og smátt komið í ljós og starfs­menn eld­is­fyr­ir­tækj­anna geta búið víða en sótt at­vinnu í heima­bæ eða í næstu þorp­um. Sama á við um fjölda nýrra fyr­ir­tækja sem hafa séð tæki­færi í þjón­ustu við fisk­eldið. Starfs­menn þeirra hafa dreifst jafnt um byggðirn­ar.

Vöxt­ur reyn­ir á innviði

Þessi starf­semi hef­ur eðli­lega reynt á sam­göngu­innviði. Um­ferð hef­ur auk­ist gríðarlega á þeim fjall­veg­um sem eru á milli byggðarlaga. Þannig eru til að mynda fjall­veg­irn­ir á milli Bíldu­dals, Tálkna­fjarðar og Pat­reks­fjarðar þeir fjöl­förn­ustu á Vest­fjörðum.

Eitt hef­ur þó ekki tekið breyt­ing­um. Far­ar­tálm­arn­ir eru enn þeir sömu og fólk ótt­ast þessa fyr­ir­stöðu. Sam­kvæmt skoðana­könn­un sem Vest­fjarðastofa og KPMG unnu veigr­ar 81% íbúa á sunn­an­verðum Vest­fjörðum sér við því að fara milli fjarða að vetr­ar­lagi. Það seg­ir mikla sögu.

Við þetta þurfa íbú­ar að búa vegna starfa en einnig varðandi al­menna þjón­ustu, lækn­isþjón­ustu og sjúkra­flug í neyðar­til­vik­um.

Skert af­hend­ingarör­yggi afurða

Vest­firsk fyr­ir­tæki búa við skert af­hend­ingarör­yggi afurða varðandi út­flutn­ing og stand­ast ekki sam­an­b­urð við aðra lands­hluta. Sama gild­ir um aðföng fyr­ir starf­sem­ina. Þetta er óá­sætt­an­leg staða. Eina leiðin til að gera Vest­f­irði sam­keppn­is­hæfa við aðra lands­hluta er að hefja sam­stillt átak í upp­bygg­ingu innviða sem setið hafa á hak­an­um. Það er ákall um upp­bygg­ingu jarðganga og annarra sam­göngu­mann­virkja sem sér­stakt og af­markað viðfangs­efni. – „Vest­fjarðalín­an“ er svarið.

Skráning á póstlista!

Skráning á póstlista Innviðafélags Vestfjarða.

Please wait…

Takk fyrir að skrá þig!